Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
26.1.2009 | 00:14
Túvalú
Vá hvað ég er slakur bloggari...HA, þetta er 1 færsla á viku...lofa betrumbætum
Var að enda við að horfa á steikta ræmu (Frontiers) svo ekki sé meira sagt! Sæællll hvað frakkinn fer yfir línuna. Annars var helgin bara nokkuð góð hérna á Vestfjörðum þrátt fyrir smá rafmagnsleysi+snjóflóðahættu. Á föstudagainn skellti ég mér í pott&saunu,...ekkert smá næs... með Einari og David síðan var pöntuð baka og horft á tellerann og snemma í háttinn. Tókum vel á því í vinnunni á laugardeginum skelltum okkur síðan á Edinborgina um kveldið í ca.2 öl. Síðan var það bara vinna og aftur vinna í dag.
Missti víst af massa Lufsu-ferð í sumó um helgina þar sem tekið var á því eins og enginn væri morgundagurinn og segja sögur að margir hafi verið í skrautlegri kantinum...nefni engin nöfn Betri helmingurinn (Helga) náði þó stelpukvöldinu. Elísa og Anna voru á Helgafellinu hjá grandma og fengu víst viðeigandi Ömmu-treatment hjá henni enda ekki við öðru að búast...alveg í skýjunum með þetta. Gamli var víst duglegur í Kiðjaberginu....össs....hlakkar til að skella mér aftur þangað í afslöppun dauðans. Kannski að maður skelli sér næstu helgi....aldrei að vita! Síðan er það næsta helgi, kem í siðmenninguna á fimmtudaginn (ef það verður ekki ófært) og svo verður kallinn 30-1 á laugardaginn...hhmm...ætli ég fái ekki sérmeðferð (t.d. morgunmatur í rúmið...hehehe) hjá konunni þar sem ég var ekki heimavið á bóndadaginn? Ætla annars bara að hafa það næs og taka því rólega og gera eitthvað skemmtilegt með stelpunum. Ætli ég fái ekki ágætis dagskrá fyrir helgina á fimmtudaginn?
Mr.Sörli...það fer að styttast í MustVisit listann!
Farinn í háttinn....Tjus
19.1.2009 | 22:59
Úthald nr.2
Jæja...þá er 2.úthaldið hafið. Fluginu seinkaði um tæpa klst. og síðan var stefnan tekin á Þingeyri og loks rútuferð yfir á Ísafjörð (Himmi! ég varð þess heiður aðnjótandi að sjá loksins sveitabæinn þinn ...já þú ert úr sveit!!!) Helgin var annars flott...búið að flísa Fálkahöfðann, familían í sund og bústað, bíóferð og hvaðeina. Þá þarf bara að þruma upp 1 hurð og redda sturtuklefanum um næstu helgi...kannski að mín elskulega eiginkona verði búin að spotta þetta og jafnvel kaupa áður en kallinn kemur í bæinn? Þá er ekkert annað eftir en að skella íbúðinni á sölu aftur og vona það besta. Ekki var ég afkastamikill á Helgafellinu....sjæse...verð að fara spíta virkilega í lófana næstu vikur og mánuði.....er einhver til í að kíkja á Fellið 28-30.jan??? Allir velkomnir!
Skíðin komu með á Ísafjörðinn í þetta skiptið og stefni ég á að kíkja á aðstæður um helgina. Annars er það bara vinna og aftur vinna...jæja læt þetta duga í bili
LATER
8.1.2009 | 00:33
Bolungarvík-Hnífsdalur
GodagGodag,
Ekki byrjaði ég vel í bloggheiminum....það skal ég viðurkenna! 1 færsla síðan fyrir jól....HA!!! en þetta fer allt að koma
Er rétt að kynnast aðstæðum og koma mér inní verkið ásamt fíneseringum á tölvumálum svo ekki sé meira sagt Fínn matur enn sem komið er og nóg etið....SÆÆLLL hvað maður þarf að fara hreyfa sig af einhverju viti ef ekki á að fara illa. Fékk nettan Site-tour um "miðbæinn" í kvöld þar sem helstu verslanir (ÁTVR) voru kortlagðar. Síðan var það gestaþrautin, þruma 1 IKEA-náttborði saman og kallinn ekki lengi að því.....og þó.
Strákurinn er kominn í gang....Svefninn kallar
Tjus
20.12.2008 | 19:01
Jólin koma og kallinn með!
Tout'e Bella!
Sælt veri fólkið. Velkomin á bloggið hjá Helgafellströllinu! Hver hefði trúa því að sjálfur sveitarvargurinn myndi fara að henda inn fréttum? Tja.......allavegana þá ég er byrjaður.
Hef ákveðið að söðla aðeins um og er á leið í nýtt job. Ferðinni er heitið on Westfjords, nánar tiltekið á Bolungarvík/Ísafjörð. Verkefnið er Bolungarvíkurgöng ásamt snjóflóðavörnum á Bolungarvík. Fer vestur 5.jan og er áætlunin að vinna í 10 daga og 4 heima, þannig að þið sem eru orðin langþreytt á fésinu á mér getið þakkað fyrir en hinir fellt tár.
Annars er nú bara allt gott að frétta héðan úr Fálkahöfðanum og allt verða klárt fyrir jólin. Þarf reyndar að taka mig á á Helgafellinu svo að familían komist inn fyrir næstu jól.
LATER,
Helgafellströllið/Murturinn/Svampurinn/Scarface o.fl.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Níels Einar Reynisson
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar